Ég var búinn að lofa færslu um heimsókn þeirra Ásgeirs og Huldu hingað til San Francisco og ætla ég nú að standa við það, þó svo að ég á að vera að vinna í tveimur ritgerðum sem ég á að skila á laugardaginn… skilaði einu 28 bls. skilaverkefni í gær og bara nenni svo ekki að gera neitt í dag.. en það er bara vika eftir af önninni og svo tekur við tveggja vikna vorfrí – alveg í lagi!
Ásgeir og Hulda komu hingað til mín á Greenwich street seint á fimmtudagskvöldi eftir örugglega svona 16 tíma ferðalag.. þá var lítið annað í stöðunni en að koma sér bara í háttinn og reyna að sofa úr sér ferðaþreytuna og safna orku fyrir hina klukkutíma-fyrir-klukkutíma dagskrá sem ég var búin að gera fyrir þau… Við vöknuðum “snemma” á föstudagsmorgninum, ég bauð upp á morgunmat í holunni minni hérna og svo var haldið af stað.. á föstudeginum náðum við að covera: sveigðustu götu heim, röltum í gegnum fisherman’s wharf, förum upp í Coit Tower og sáum yfir alla borgina, röltuðum í gegnum Chinatown þar sem við borðuðum geggjaðan mat, en þaðan lá ferðin út í Alcatraz. Það var alveg mönguð upplifun að koma þangað, hlustuðum á mjög vandaðan audio tour sem leiddi okkur í gegnum fangelsið og útsýnið yfir borgina frá eynni er mjög flott.. Ég mæli tvímannalaust með að fólk fari kvöldferðina til Alcatraz! Eftir það fórum við á rosalega vinsælan og góðan ítalskan stað í North Beach sem er “little Italy” hérna í borginni.. þurftum að bíða í tæpan klukkutíma eftir borði en það var vel þess virði.. eftir það var bara haldið heim á leið enda búin að afreka miklu fyrsta virka dag heimsóknarinnar..
Á laugardeginum var svo haldið norður fyrir borgina eða í vínsmökkunarferð um Napa og Sonoma vínhéruðin.. lagt var af stað frá borginni klukkan 9 um morgunin og við komum aftur til borgarinnar um 4-5 leitið.. við stoppuðum hjá þremur vínframleiðendum og fengum að smakka.. vínið á fyrsta staðnum var mjög gott en vínið fór eiginlega versnandi eftir það.. kannski þeir geri ráð fyrir að fólk sé orðið svo drukkið að það taki ekki eftir því.. en umhverfið varð samt alltaf fallegra og fallegra og ég mun pottþétt fara þangað uppeftir aftur við tækifæri.. einnig var stoppað í miðbæ Sonoma í hádegismat sem var alveg ágætt.. þegar það var svo komið til borgarinnar aftur tókum við smá rölt um hverfið mitt hérna og seinna um kvöldið skelltum við okkur svo aðeins út á lífið enda ekki annað hægt í San Francisco á laugardagskvöldi..
Sunnudagurinn var síst planaður í heimókninni.. við horfðum á leik í háskólakörfuboltanum á sport bar hérna rétt hjá mér, fórum svo smá verslunarleiðangur downtown og enduðum á að fá okkur að borða á Cheesecake Factory við Union Square þar sem við fengum okkur að sjálfsögðu ostaköku í eftirrétt og var ekki séð eftir því..
Á mánudeginum löbbuðum langleiðina yfir Golden Gate brúnna og fórum svo niðrí Golden Gate Park þar sem við fórum á California Academy of Science sem er nokkurskonar náttúruvísinda -safn/rannsóknarmiðstöð.. síðan var skóli hjá mér á mánudagskvöldina þannig að þau fengu aðeins meiri tíma til að versla og fá sér sushi downtown..
Á þriðjudeginum skoðuðum við hippagötuna Haight street og horfðum að sjálfsögðu á meistaradeildina… fórum þaðan niðrí Mission sem er latino hverfið og fengum okkur burrito en þeir þykja einna bestir þarna.. ég var svo líka í tíma á þriðjudagskvöldinu en þau gátu kíkt aðeins meira í búðir en fóru svo út að borða á mjög flottan víetnamskan stað á Ghiradelli Square og fengu sér súkkulaði eftirrétt, eitthvað sem Ghiradelli eru þekktir fyrir…
Á miðvikudeginum horfðum við svo líka á meistaradeildina, skoðuðum The Painted Ladies, frægahúsaröð sem byggð eru í Viktoríustílnum.. þaðan var haldið downtown þar sem gerð var lokatilraun við búðirnar.. eftir að hafa klárað það hoppuðum við upp í Cable Car, sem tók okkur að Swensens ísbúðinni en þar var að sjálfsögðu splæst á ís í sólinni og við röltum þaðan heim enda flug hjá þeim til Boston nokkrum tímum seinna…
Það var alveg ótrúlega gaman að fá þau í heimsókn hingað.. bæði til að gefa þeim smá innsýn inn í það líf sem ég lifi hérna og til að fá að upplifa og fara á staði sem ég hafði ekki farið á áður í þessari geggjuðu borg! Þau eiga bestu þakkir fyrir að hafa verið snilldarfélagsskapur enda ekki við öðru að búast… hvet ég alla sem eiga möguleika á og langar til að leggja á sig ferðalag til Californiu til að skella sér upp í næstu vél því það er svo gaman að fá heimsóknir og njóta þess að vera hér í góðum félagsskap… er alveg viss um að Ásgeir og Hulda hafi notið þess nema þau hafi verið að ljúga að mér.. væri svo sem líkt þeim
Allar myndirnar sem ég tók á meðan á heimsókninni stóð eru að finna hér: http://picasaweb.google.com/tomas.adal/
Eftir heimsóknina var náttúrulega heilmikil heimavinna sem beið mín því ég var ekkert búinn að læra í viku þannig að núna er ég bara búinn að vera upp fyrir haus.. önnin er að klárast og ég að leggja lokahönd á síðustu ritgerðirnar og verkefnin, blessunarlega engin lokapróf á þessari önn.. en önnin klárast sem sagt á þriðjudaginn næsta og þá tekur við tveggja vikna frí.. ég fer strax á fimmtudaginn niður til LA og svo þaðan til Santa Barbara þar sem ég hitti tvo félaga mína þar og vini þeirra… við erum svo eitthvað að skoða hvað við ætlum að gera en ætlunin er allaveganna að spila eitthvað golf, jafnvel skoða einhverja þjóðgarða, kannski fara og skoða Grand Canyon með viðkomu í Las Vegas sem væri mjög spennandi.. það er nóg hægt að gera.. þannig að við eigum bara eftir að ákveða hvað…
Nú er bara að koma sér í lokatörnina í ritgerðarskrifum og gera svo eitthvað gott í tvær vikur áður en næsta önn byrjar svo..
Stay tuned for spring break adventures in California!!!


