Ég ætla að skrifa eina stutta færslu af því að ég veit að sumir vinir mínir eru svo latir að þeir hafa engan veginn nennt að lesa allt það sem ég er búinn að vera að skrifa. Þetta verður því svona eins og auðlesna efnið í Morgunblaðinu – samt ekki!
Ég hélt fyrsta fyrirlesturinn minn á ensku í gær. Það gekk snilldarlega. Var líka búinn að æfa mig frekar mikið. Fyrirlesturinn var um markmiðasetningu og mikilvægi þess að setja sér skammtímamarkmið sem leiða svo að langtímamarkmiðinu. Kennarinn var ánægður og krakkarnir í bekknum mjög hrifnir. Þá get ég nú ekki mikið kvartað. Annars er ég ekki með fullt hús lengur fyrir prófin og verkefnin. Róðurinn aðeins að þyngjast, eru að koma inn fleiri orð sem ég skil ekki og á erfitt með að muna. Og síðan eru kennararnir farnir að vera strangari á smáatriðum.
Annars ætlar Robyn sambýlingur minn að vera með Halloween partý hérna heima á föstudaginn, verður gaman að sjá það. Ég get reyndar ekki mikið verið með þar sem það er tími hjá mér allann laugardaginn. Bekkurinn minn ætlar svo að koma til mín eftir tímann á laugardaginn og við ætlum að lyfta okkur aðeins upp enda vikan búin að vera strembinn. Þrjú próf, tvær ritgerðir og eitt skilaverkefni plús slatti mikill lestur.
Lengra verður það ekki i bili!
Stay tuned for the next episode of Pleasant Hill!
Elskan, gott ad heyra ad fyrirlesturinn gekk vel!
Skiptir mali lika ad slappa af og lyfta ser upp. Gedheilsan verdur ad vera i lagi (jebb tetta kemur fra mer!).
Verd ad segja ter fra yndislegum hadegishittingi sem eg atti i dag! Vona ad eg sjai tig a Skype fljotlega svo eg geti deilt tessu med ter!!
- Tveir risar ur islenska salfraedigeiranum koma her vid sogu!
Værir þú til í að hafa þetta aðeins styttra?
d j ó k
Ég les þetta allt saman – með vinstri.
Bestustu kveðjur.
p.s. annars veit ég ekki hvað er að gerast með Njallann. Tveir bjórar og fólk fór snemma í háttinn í gær. Hrikalegt.
Mér hugnast svona stuttar færslur. Hins vegar vil ég á hafa þær daglegar.
…svo treysti ég því að þú hafir farið í gervi hjúkrunarfræðings í Halloween boðið í gær…
Fólk fór ekki snemma í háttinn í gær, almennt. SYTYCD fílingur fram á rauða nótt og það vantaði bara þig! Nútímadans og læti (eehh.. töff?). Je.
Danskveðjur yfir!
ekki eins og þetta sé bara erfið vika fyrir þig… maður er hérna á fullu að hjálpa þér að gera skilaverkefni alla vikuna…. ekki beint
hehehe..
Maggi: farðu nú að taka þig og þína á á Njallanum.. gengur ekki lengur!
Sveiga: sambýlingur minn vinnur á sjúkrabíl og á bara vini úr sjúkrahúsinu.. þannig að vera í gervi hjúkrunarfræðings hefði ekki verið frumlegt.. bara eins og hinir
Matthea: bannað að segja svona fréttir þegar maður er í útlandinu.. langar í íslenskt djamm..
Oddur: þakka þér kærlega fyrir hjartað mitt.. þið strákarnir stóðuð ykkur eins og hetjur með að svara mailunum mínum..