Ég er að upplifa ansi marga hluti í fyrsta skipti núna. Kannski ekki skrítið þar sem ég hef aldrei verið svona lengi annarsstaðar en á litla kalda klakanum. Það var líka hluti af þessu ævintýri mínu. Fara nánast hinum megin á hnöttinn í nám og sjá hvað gerist.
Á föstudaginn var hrekkjarvaka hérna í kanaveldi. Það er rosalegt hvað þessu er tekið alvarlega hérna. Í fjölskylduhverfinu mínu hérna var nánast hvert einasta hús (og garðurinn líka) skreytt með graskerum, draugum og alls konar ljósaskrauti. Gaman að sjá svona hátíð sem við höfum ekki heima. Sambýlingurinn minn hélt svaka partý og skreytti sjálf allt húsið. Mjög flott hjá henni. Það var meira að segja strope ljós, reyktæki og þurrís. Talandi um að taka þetta alla leið! Ég gat reyndar ekki tekið djammið með þeim þar sem einn kennarinn var svo skemmtilegur að hafa tíma á laugardeginum eftir hrekkjavöku og það frá kl. 9 til kl. 15.30 – sex og hálfur tími takk fyrir! Og þetta var ekki einu sinni skemmtilegur tími. En hinsvegar var mjög gaman að taka á móti öllum krökkunum sem komu og spurðu um “trick or treat”. Þau voru öll í mismunandi búningum og auðvitað var hún Robyn, sambýlingur, búin að kaupa nammi í skál til að gefa krökkunum sem komu. Hún var svo upptekin að gera allt klárt fyrir partýið að ég sá um það að gefa krökkunum nammið. Mér fannst mest fyndið þegar svona 14-15 ára krakkar komu og ég spurði hvað þau væru, svarið var einfalt, “casual friday”. Þau voru með þetta allt á hreinu, ætluðu sko að fá sitt nammi.
Á föstudaginn rigndi líka í fyrsta skipti í þann mánuð sem ég er búinn að vera hérna. Þetta var enginn venjuleg rigning, þvílíkt úrhelli. Það var nú ekki svo mikil rigning þegar ég hjólaði í skólann á laugardaginn en þegar ég hjólaði heim þá voru stundum svo stórir pollar á götunum að það var eins og reyna að komast í Þórsmörk að hausti til. Ok, kannski ekki alveg, en ég varð rennandi blautur í gegn. Síðan þegar ég var orðinn vel blautur, þá fannst mér þetta eiginlega bara gaman. Langaði bara að fara aftur út og bruna í stærstu pollana sem ég fyndi. Væri svo gaman að vera 12 ára aftur.
Í nótt upplifði ég svo fyrsta skiptið þegar klukkunni er seinkað. Ég var vakandi í fyrrinótt til kl. 2. Svo þegar klukkan sló 2, varð hún strax aftur 1. Mjög þægilegt þar sem ég hafði vakað gjörsamlega að ástæðulausu og gat því samviskusamlega farið að sofa klukkan 1. Öllu skárra en klukkan tvö. Græddi þarna heilan klukkutíma. Vildi óska þess að þetta væri svona á hverjum sunnudegi.
En núna þarf ég að fara að halda áfram að læra fyrir miðannarprófið í Siðfræði og fagmennsku. Alveg ótrúlega skemmtilegt – ekki beint!
Tonight on Pleasant Hill!
Þú ert nú heppinn að vera ekki eins og hún kæra Eva. Þegar ég var á Spáni dreif ég mig á fætur á venjulega tímanum, borðaði, klæddi mig og bankaði upp á hjá grannanum til að ath hvort hún vildi ekki vera samfó í skólann. Hún kom til dyra í náttfötunum, með hárið út í loftið og blótandi mér fyrir að skemma þennan auka klukkutíma sem hún átti að eignast þessa nóttina….jájá ég er vitlausi íslendingurinn!
Annars gaman að þú sért að upplifa fullt af “fyrstu skiptum”
Ég heimta ekta hrekkjavöku-myndir!
Þú misstir af hrekkjavökupartýi aldarinna hjá Ásrúnu. Við Oddur vorum í Hrísey en það var víst tekið ameríkanann á þetta, þurrís og læti.
Heyrru, hvernig væri að bomba inn færslu um kosningarnar og hvernig þú upplifðir þær! Ég var spenntasta manneskja í öllu Bretlandi, vakti til að horfa á kosningasjónvarpið og las blöðin spjaldanna á milli.. kom í skólann og fólk vissi ekki hvor hafði unnið, ég skal nú segja það… alveg makalaust!
Góóóó Tommi og Hallóvín!
S
Tomminn bara að blogga á hundrað – þetta vissi maður eigi
Gaman að geta fylgst með þeim sem eru horfnir út í heim – maður sjálfur í Asíu, þú í USA, Sigga á leið til Ástralíu og Sunna í UK..ekki slæmt.
Hefði verið til í að upplifa “alvöru” Halloween – hljómar ekki illa.
Gangi þer vel með allt í bili….
ohhhh ég ELSKA halloween, helduru að það sé einhver sjens á að flytja þetta heim?? það skal enginn ljúga að mér að hann verði jafn spenntur fyrir öskudeginum…
gaman að fylgjast mér annars tommi minn.. ég upplifi bara ameríkuna mína í gegnum þig þar sem fjárhagur mun ekki leyfa annan munað næstu árin
gangi þér vel í skólanum og massaðu þessi próf!
ekki fyrsta skiptið sem ég horfi á þessa fyrirsögn…
Tek undir með Oddi. Þú mátt taka þessu sem formlegri kvörtun.
Ertu búinn að blogga þessa færslu nokkrum sinnum eða er þetta ennþá sama færslan?
Ég elska þig fallegi maður. Komdu nú með einhverjar fréttir
Ef þú ert ástfanginn, þá drep ég þig.
tek undir..ekki með elíasi samt…bloggaðu drengur:)
Hvað er að frétta?