Afsakið letina í mér.. ég er þvílíkt ángægður með þessa pressu sem þig eruð að setja hérna á mig. Þarf á þessu að halda þegar ég virðist þurfa að kreista blogg-andann úr flöskunni. En ástæðan fyrir bloggleysinu er ekki sú að ég sé orðinn ástfanginn eins og Elli ætlaði að halda fram í commenti við síðustu færslu (hehehe..). Það er bara einfaldlega búið að vera svo mikið að gera í skólanum. Það er frekar takmarkað hvað maður nennir að skrifa um skólatengtefni á þessu bloggi. En það er kannski eitthvað sem ég get týnt til.
Það sem ég og félagar mínir hérna gerum helst til að lifta okkur aðeins upp og taka hugann frá bókunum er að kíkja út i nokkrar ölkönnur. Við erum þegar komnir með uppáhaldsstað á fimmtudögum. Ég verð samt að taka það fyrst fram að hverfispöbbinn í mínum yndislega bæ Pleasant Hill kallast Maggoo’s og er hræðilegur! Fastagestir eru truckdrivers og mótorhjóla”töffarar” yfir fertugt! Spennandi ekki satt? Þess vegna höfum við á fimmtudagskvöldum (er ekki í tíma á föstudögum) farið niður í Walnut Creek sem er bær svona 10 min héðan á írskan bar sem heitir Dan’s og dillað bossanum við geislandi 80′s cover tónlist hljómsveitarinnar Spazmatics. Þetta er alveg snilldarband. Þeir klæða sig upp sem nördar (sjá mynd) og leggja mikið upp úr því að spila sín hlutverk sem slíkir. Úr því verður alveg snilldar show og tækifæri til að svitna á enninu og harðsperrur í kálfana. En síðasta laugardag langði mér og félaga mínum að gera eitthvað nýtt þannig að við skelltum okkur aðeins til Berkeley. Mjög flottur bær. Fullt af háskólakrökkum en við vorum svo stutt þannig að það er ekki mikið að segja frá.
Útsala í Macy’s. Já, það er rétt. Í mollinu fína hér í Pleasant Hill var útsala bara í karladeild Macy’s. Það vildi svo heppilega til að ég var staddur þar inni þann dag. Í “kreppunni” skellti ég Nike jogging buxum, Nike jakka, Calvin Klein boxerum og Tommy Hilfiger hettupeysu á búðarborðið og renndi kortinu í gegn. Segið svo að maður lifi ekki draumalífi hér í ameríkunni.
Nýjasta æðið mitt núna þegar ég nenni ekki að læra meira er að horfa á uppistönd (skrítið orð) á Youtube og Google Videos. Hægt að finna ótrúlega mikið af fáránlega fyndnu efni þar. Horfði á uppistand með Dane Cook í gær. Mæli með að þið kíkið á það hér. Næsta er svo að skella sér á comedy club í borginni en það verður að bíða þar til skólinn fer að róast.
Í lokin, vegna mikillar eftirspurnar, verð ég að minnast aðeins á forsetakosningarnar hérna. Ég verð bara að viðurkennar það fúslega að mér finnst mjög skrítið að upplifa meiri áhuga á Bandarísku forsetakosningunum hjá fólkinu á klakanum en nokkur tímann kananum. Ég vildi Obama sem forseta og var ánægður að hann var kosinn. Það var nú bara sérstaklega útaf utanríkisstefnu hans sem er ekki eins her-væn eins og MaCains. En ég get sagt ykkur það að við vorum í tíma þegar tilkynnt var um sigur um Obama. Ég las það á netinu á tölvunni minni og tjáði bekknum mínum að þau væru komin með nýjan forseta. ÞAÐ VAR ÖLLUM DRULLU SAMA! Það kom ekki einu sinni “ok”. Það var eins og ég hefði sagt þeim að íslenska landsliðið hafi unnið handboltaleik! (btw, slétt sama um Ísland og vita ekki hvað handbolti er). Það voru bara allir ótrúlega ánægðir með að þetta væri búið að þá þyrftu þau ekki að vera fyrir öllu þessu áreiti sem fylgdi kosningabaráttunni. Ég fékk virkilega fleiri spurningar frá Íslendingum um hvernig hefði verið að verar hérna þegar kosið var heldur en nokkurn tímann viðbrögð frá heimamönnum.
Jæja það bíða mín þrjár ritgerðir, ein rannsókn, lokapróf á mánudaginn og slatti af skemmtilegum bókaköflum. Ég hlakka samt til eftir ca. viku. Þá verð ég búinn með mánudags og fimmtudagstímana og fram að jólum verð ég bara í tímum á þriðjudögum og miðvikudögum. Þá verður lífið aðeins bærilegra.
Þangað til næst!
The life goes on in… Pleasant Hill!
Sjíses, en magnað. Kannski ekki skrýtið þegar kosningaþátttaka er jafn lítil og hún er þarna úti. Samt hefði ég nú haldið að fólk hefði haft skoðanir á málunum.. Allavega.
Það er gott að þú sért orðinn ástfanginn af skólanum og sért að rúlla þessu upp!
Vildi að ég gæti tekið jafnt djúpt í árina varðandi skólann minn…
Annars er allt gott að frétta hérna megin!
Hafðu það gott elskan mín og farðu vel með þig!
S
Komdu margblessaður og sæll og þakka þér fyrir síðast. Mig langar til þess að byrja á því að þakka þér fyrir skemmtilegt blogg. Hvet þig til þess að senda þennan pistil til birtingar í dagblaði. Enn fremur hvet ég þig til þess að halda áfram á sömu braut því jú, öllum finnst okkur gaman að lesa um það sem á daga þína drífur.
PS. Ef þú ert ástfanginn þá drep ég þig.
Og já! Nike-joggingbuxur! Sæll! Eigum við að ræða það eitthvað?
Lyfta er með yfsiloni, ekki glata tungumálinu í útlöndum drengur minn.