Laufblauð falla, á allt og alla…

…og 27 dagar þar til ég kem á klakann. Ég er farinn að hlakka frekar mikið til að koma heim um jólin. Búið að vera nóg að gera í skóla, hlakka til að komast heim, fá gott að borða, smákökur, macintosh og jólaöl.  Hlakka líka ótrúlega til að hitta alla vinina, bæði til að kíkja út og líka bara til að liggja undir teppi og horfa á dvd eða taka gott spilakvöld.

Annars var ég í lokaprófi síðasta mánudag. Það gekk bara ágætlega held ég, ekki búinn að fá einkunina ennþá en ég er samt búinn með fyrsta fagið mitt hérna út. Ekki lengur tíma á mánudögum fram að jólum. Ég á svo bara eftir að skila einni ritgerð í örðu fagi og þá er ég búinn með það en ekki lengur tímar á fimtudögum. Það þýðir að ég er bara í tíma á þriðjudögum og miðvikudögum. Það er mjög notalegt þar sem það eru alltaf brjáluð skil fyrir þessa tvo tíma. En síðan er líka fínt að hafa fimm daga helgi =)

Á föstudaginn varð í fyrsta skiptið vitni að samskonar starfsþjálfun og ég mun vera í á næsta ári. Í einu faginu hérna fengum við sem sagt það verkefni að fylgjast með 2. árs nema vinna með sitt lið. Ég komst í samband við stelpu sem er að vinna með kvenna tennis liðið í University of San Francisco og fékk að fylgjast með hópfundi hjá henni. Hún er sem sagt búin að vera að vinna með þessu liði undanfarna mánuði, er með hópfundi einu sinni í viku og svo reynir hún að hitta hvern og einn leikmann einu sinni í viku. Síðan reynir hún að fylgjast með æfingum og þegar þær eru að keppa eins mikið og hún getur. Það var ótrúlega gaman að sjá svona dæmi um það hvað ég er að fara að gera. Starfsþjálfunin er það sem ég hlakkaði mest til hérna og var ein af stóru ástæðunum fyrir því að ég sótti um í þennan skóla. Ég ætla að leggja mikla áherslu á að koma að hjá einhverju spennandi liði á næsta ári.

Á laugardaginn fórum svo ég og Patrick félagi minn á fyrstu beinu útsendingu Youtube sem var haldin á Fort Mason bryggjusvæðinu í San Francisco. Þegar við komum út úr strætóinum og vorum að labba að staðnum blasti við manni Alcatraz í allri sinni dýrð sem minnti mig bara á bíómyndina The Rock og svo Golden Gate brúin. Frekar flott svæði. Það tók okkur svo smá tíma að fá miða þegar komið var niður á svæðið en meðan ég beið var mér litið til hliðar og þá stóð bara Will.I.am (gaurinn sem var í Black Eyed Peas) við hliðina á mér. Siðan þegar við komum inn sáum við m.a. Mythbusters, fáranlega fyndinn grínista Bo Burnham, Katy Perry tök lagið Hot N Cold, Will.I.am var auðvitað með sitt framlag og fleiri góð atriði. Snilldar show hjá Youtube. Í lok showsins fengum ég og Patrick okkar tækifæri til 15 sek frægðar. Við stóðum upp við annað sviðið og þá kemur einhver starfsmaður upp að okkur og spyr hvort að við viljum labba með Akon upp að sviðinu. Við afþökkuðum pent en það er hægt að sjá skuggamyndina af okkur báðum í byrjun þessa myndbands af atriðinu. Skil ekki enn af hverju ég fór ekki. En Eftir þetta ákváðum við nú bara að skella okkur aðeins út á lífið í borginni áður en við þyrftum að ná bartinu (lestarkerfið hérna) aftur til Pleasant Dump eins og P. komst svo skemmtilega að orði.

Það er farið að kólna soldið hérna í Californiu – já, það gerist víst! Hitinn á daginn er farinn að fara undir 20 stiginn og alveg niður í 5-6 gráður á nótunni. Það er því skítakuldi hérna snemma á morgnanna og seint á kvöldin. Þið tókuð kannski eftir að ég sagði “snemma á morgnanna” en já, ég er að vakna mun fyrr hérna en heima á klakanum. Held að það hafi eitthvað með skammdegið að gera. Mjög sáttur að vera laus við það. Hérna dimmir bara kl. 18 og það birtir kl. 8. En eins og ég sagði áðan þá hlakka ég samt órtúlega að koma heim um jólin í kuldann og skammdegið, njóta þess í þrjár vikur og geta svo farið aftur út í hitann!! =)

Stay classy San Diego – þeir töpuðu í Sunday Night Football leiknum sem ég var að horfa á.

Don’t miss the next exclusive story from Pleasant Hill!

10 Responses to “Laufblauð falla, á allt og alla…”


  1. 1 Sá allra skemmtilegasti á Njallanum November 24, 2008 at 4:27 pm

    Ég hlakka ekki neitt til þess að fá þig á “klakann” eins og þú nefnir land þitt.

    d j ó k

    - póker, tjill, sull, RPC og allur pakkinn fyrir allan peninginn! Jáhá…

    Gaman að heyra að þú sért að slaka á með stjörnunum. Sjálfur sá ég Geir Ólafs og Örn Árnason í morgun.

  2. 2 Sunna November 25, 2008 at 7:36 am

    Ég skil afhverju þú fylgdir ekki þessum hálfvita. Hann er nefnilega algjör auli. Tjekkaðu á vídjóinu af honum þar sem sýnir MJÖG óeðlilega hegðun við aðdáanda. Það er e-r ræfilsstelpu sem missir sig af gleði þegar hann stígur uppá e-n pall þar sem hún stendur. Þessi bjáni hendir stelpunni svo fram af! Fuss og svei.. Gott að þú sért að verða búin í áföngunum þínum.
    Ég sakna HÍ og sálfræðinnar.
    Hlakka líka til að fá malt og appelsín og knúsa alla heima.. það verður ljúft.

    Blex félagi, gangi þér vel

  3. 3 Sunna November 25, 2008 at 7:37 am

    Vavaviva, ég er bara óskrifandi svona snemma morguns…
    s.s. -stelpA, búinn.. osfrv.

  4. 4 *Matthea November 25, 2008 at 8:56 am

    Laufblauð? Er það einhverskonar samskot af laufblöð og laufabrauð? Nei bara pæling hér í (ógeðis) próflestri og síðustu verkefnaskilum. Baráttukveðjur yfir til þín!

  5. 5 Tommi November 25, 2008 at 10:04 am

    Matthea: hehehe… shit.. ég tók ekki einu sinni eftir þessu.. svona er maður orðinn amerískur.. hehehe.. ég ætla að hafa þetta svona..

    Sunna: já, sammála.. sakna sálfræðinnar í HÍ.. og tala nú ekki um krakkanna sem ég var með á ári þar.. úff! þvílíkt snilldar pakk!

  6. 6 Sunna November 28, 2008 at 3:18 pm

    Vildi bara athuga hvort þú hefðir séð klukkið? Það þykir víst óíþróttamannslegt að taka ekki svona áskorunum.. heyrði því allavega fleygt e-s staðar.

    P.s. sástu facebook póstinn um sálfræðihitting? Það væri gaman að hittast aðeins og taka púlsinn á liðinu..

    Bestu kveðjur, Sunna og ónæmisfræðin!

  7. 7 Fjóla November 28, 2008 at 6:28 pm

    Hæhæ, takk fyrir ammliskveðjuna um daginn:)

    Þér að segja þá eru laufblauð uppáhalds blauðin mín.

    Gott spilakvöld? Meinarðu eins og þegar við Óli RÚSTUÐUM ykkur í Monopoly í fyrra? Við tókum ykkur í nefið!! Múhahaha. Samruni er náttúrlega ein besta hugmynd í sögu þessa spils.

  8. 8 eliasblondal November 29, 2008 at 12:45 am

    Þetta tækifæri til 15 sekúndna frægðar minnir mig á þegar mér var boðið að leika í auglýsingu fyrir Guld Korn í Tivoli í Kaupmannahöfn. Ég þorði ekki, var svo feiminn. Átti m.a.s. að fá 500DKR á þávirði. Ég hugsaði um þessi mistök mín á hverju kvöldi í mörg ár. Geri raunar enn.

    Annars hlakka ég til að fá þig heim, þú lagar statistíkina hérna aðeins. Svo ertu líka bara nokkuð skemmtilegur. Flottur strákur.

    Kv.
    Baron De Ley

  9. 9 eliasblondal November 29, 2008 at 1:04 am

    Og já, ehh.. Monopoly.. ehh.. þú veist.. Fjóla.. þegiðu skilurðu..

    Það er hægt að framkvæma samruna á fleiri en einn hátt og þú vilt ekki vita hvernig hin óhefðbundna aðferð er.

  10. 10 tomasfreyr November 29, 2008 at 7:27 pm

    Sunna: svona klukk eru alveg það leiðinlegasta í heimi… en búinn að svara með sálfræðihittinginn og hlakka mikið til að hitta ykkur klikkhausana ;)

    Fjóla: þarf ég að fara að blokka þig frá frekari commentum hérna? ég og Elli vorum svo lang bestir í þessum spili..

    Elli: þú ert ótrúlega hress og skemmtilegur strákur og mér líkar rosalega vel við þig en…


Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s





Follow

Get every new post delivered to your Inbox.