Sæl veriði… þýðir ekkert að vera annað en að vera sæll og glaður á krepputímum.. sérstaklega þegar gengið er svona ands#&$%#, djö#$&, helv#$& “hagstætt”.. en nóg um það.. það eru að koma jól – brosa =)
Ég fékk fyrstu lokaeinkunina mína í gær. Fór á fund með prófessornum þar sem hann fór yfir allt sem við gerðum á námskeiðinu og A- var niðurstaðan (fyrir þá sem kannast ekki við bókstafakerfið þýðir A- 90-94% af 100%). Prófessorinn sagði ritgerðina mín hafa verið einstaklega góða og að hún hafi verið mjög ánægð með þátttöku mína í tímum (athyglissjúklingurinn ég) þar sem ég hafi oft komið með vel útfærðar athugasemdir um efnið. Ekki slæmt. Það litla sem dró mig niður voru skyndiprófin sem við tókum á fyrstu vikunum en þá var ég ennþá að læra á prófin hérna og var því að gera klaufavillur. En mjög sáttur með að byrja einkunnaspjaldið með A! Vona að það fari bara ekki niður stafrófið.. B, C, D.. það væri verra.
Í dag: skila inn verkefni og fara í skyndipróf. Á morgun: fyrirlestur, ritgerðarskil og skyndipróf. Sunnudaginn: ritgerðarskil. Næsta vika er svo upprifjunarvika og í vikunni þar á eftir fer ég í tvö lokapróf. Þessi fjórðungar er því að vera búinn. Búið að vera skuggalega fljótt að líða enda búið að vera mjög skemmtilegt.
Ég kem á klakann morguninn 21. des og fer aftur út 9. jan. Ætla svo að njóta þessara 3 vikna vel. Liggja í leti á milli þess sem ég skemmti mér með vinum og fjölskyldu. Svo þegar ég kem hingað út aftur verður byrjað að hlýna. Strax í mars verður meðalhitinn kominn yfir 20 gráðurnar. Þannig að það er allt í lagi að láta sér verða aðeins kalt þegar ég kem heim.
Ég fór á NBA leik í Oracle Arena í Oakland í gær. Félagi minn fann miða á netinu á geggjuðum stað á fínu verði (dollaraverð – ekki gengisverð) Við sáum Miami Heat leika við Golden State Warriors og þar sem við búum nú hérna í nágrenninu þá að sjálfsögðu héldum við með The Warriors. Þvílíkur leikur. Þetta var í annað sinn sem ég fer á NBA leik og síðast þegar ég fór þá var leikurinn þríframlengdur þannig að ég sagði við strákana að leikir sem ég færi á í NBA deildinni yrðu alltaf framlengdir.. og sú varð raunin. The Warriors höfðu leitt allan leikinn er hleyptu Dwayne Wade af stað í síðasta fjórðungnum og þegar stutt var eftir jafnaði hann með 3. stiga körfu. Leikurinn fór því í framleggingu og þegar um 20 sek voru eftir þá voru The Warriors 4 stigum yfir. Forskot sem á ekki að vera hægt að glata niður. Með einhverjum ótrúlegum hætti þá tókst Miami þó að sigra.. ég orðinn hás af öllu öskrinu og þvílíkt svekktur að “mínir menn” hefðu tapað leiknum. Það er sagt að stemningin sé einna best í Oracle Arena í NBA deildinni. Ég get ekki vottað fyrir það enda bara farið á tvo leiki en stemningin var fáránlega góð. Fólk stóð, öskraði og klappaði allan leikinn.. og ekki skemmdi fyrir að leikurinn var jafn og spenanndi. Við erum þegar búnir að plana að fara á annan leik 9. feb þegar San Antonio kemur í heimsókn en félagi minn heldur með því liði.
Jæja, þarf að fara að undirbúa fyrirlestur…
Stay tuned!
Þetta er heldur en ekki flott hjá þér minn kæri, innilega til hamingju, gaman að vita að sjaldan fellur eplið langt frá eykinni og því gott að eiga eins vel gefinn frænda og þú átt
skemmtilega skrifuð, hnittin en um fram allt upplýsandi. mæli sérstaklega með kaflanum sem byrjar á “Í dag:” en hann gefur svo góða heildarmynd yfir nætstu tvo sólahringa hjá honum í náminu þó að ónægar upplýsingar séu um næstu viku og leitast ég til þess að bót verði gerð á.
Frábær einkunn hjá þér Tommi minn, til hamingju!
alltaf jafn spennó þegar kemur nýr þáttur af Pleasant Hill!! hehe gangi þér vel með restina…..
Awesome, kallinn getur þetta án hjálpar okkar stelpnanna – SKO!! Þetta er frábær árangur Tommi minn, í alvöru talað. Það er ekki alltaf auðvelt að tjá sig á öðru tungumáli en okkar ástkæra ylhýra.
Gangi þér áfram svona svakalega vel elskan mín, hlakka til að sjá í skottið á þér – 30. des!
- P.s. hvað varð um klukkbloggið sem þú skuldar mér?
S
Ætlar þú að taka þátt í Íslandsmeistarmótinu í Jatsí innanhúss sem verður haldið þann 26. desember nk.?
Diddi: takk fyrir það.. þetta er að sjálfsögðu allt í genunum
Gaui: ég veit ekki einu sinni hverju ég á að svara..
Guðbjörg: þakka þér fyrir.. ég reyni að standa mig með restina..
Sunna: þakka þér.. ég rétt lifi án ykkur.. hlakka til að hitta ykkur þann 30. en klukkið var ég búinn að segja að er alveg glatað.. svara því kannski seinna
Elli: auðvitað verð ég með í Íslandsmótinu.. ég er rosalegur i jatsí!
Ég skrái þig í mótið. Klukk.
kemuru ekki fyrr en 29.des?
Til hamingju Tommi!! Ert að standa þig svo vel, áttu ekki von á öðru! Hlakka til að sjá þig um jólin =)
átti að vera átti með i
Tommi, ég er ennþá tuned og bíð spennt eftir næsta bloggi.