já, ég er kominn aftur.. ég vil byrja á því að biðjast afsökunar á bloggleysi mínu. Það hafa margir hvatt mig áfram og sýnt einstaka þolinmæði en ég verð bara að viðurkenna að mér fannst eiginlega allt annað sem ég var að gera meira spennandi en að blogga. Nú er ég byrjaður aftur.. ég fékk digital myndavél í jólagjöf og lofa því myndum með hverri færslu núna (úff.. kannski að setja full mikla pressu á mig núna)..

Ég og mútta um áramótin
Ég bloggaði síðast 19 dögum fyrir heimferð á klakann og þá tók við próflestur og verkefnaskil til þess að klára fyrstu önnina mína í framhaldsnámi og í skóla annarsstaðar en á Íslandi.. Í fyrsta lagi var önnin ótrúlega fljót að líða en ég held að stór hluti af því hafi verið hversu gaman ég hef haft af náminu mínu hérna.. síðasta önn gekk vonum framar.. ég var einu prósentustigi frá því að vera bara með A en ég fékk einn A+ (sem þýðir 10 á íslensku) og var ég mjög stoltur af því.. árangur síðustu annar hefur bara hvatt mig til þess að halda áfram á sömu braut og njóta þess tæifæris sem felst í því að geta verið hérna úti.. ég er alltaf að fíla námið betur og betur og þetta er líka smám saman að færast út í meiri praktík þar sem okkur er hreinlega hent út á völlinn til þess að fá þjálfun í því sem við erum að læra.. ég byrja því með mín fyrstu viðtöl á þessari önn.. bara gaman..
Jólafríið heima á Íslandi var algjör draumur.. órtúlega gott að koma heim, knúsa famelíuna, láta múttu stjana við sig, borða góðan mat.. og já, fullt af nammi og smákökum.. ég geri mér alltaf grein fyrir því meira og meira hérna úti hvað fjölskyldan og vinir eru stór hluti af mér og hvað ég er heppinn að eiga svona góða að.. ég hef líka haft gott af því að vera hérna úti og virkja sjálfstæðið í sjálfum mér.. ég skemmti mér frábærlega með vinunum og það er alveg á hreinu að þessi vinahópur klikkar aldrei! ég keypti hins vegar bara flug aðra leiðina hingað út því það er ekki víst hvenær ég kem heim til Íslands aftur, kannski ekkert fyrr en næstu jól. Skólinn hjá mér skiptist í fjórar annir sem ná yfir allt árið með ca. viku-10 daga á milli anna. Það þýðir að ég er í skólanum næsta sumar líka. Ég ætla þó að reyna að komast heim fyrstu vikuna í ágúst.. reyndar ekki til að fara á Þjóðhátíð (þó það væri frábært að komast á þá 10. í röð) heldur til þess að komast í brúðkaup Jakobs vinar míns, það fyrsta af vinum mínum.. en ég verð að sjá til hvort ég fái frí í skólanum til þess.. þangað til verð ég bara að treysta á heimsóknir ykkar til Kaliforníu.. Ásgeir og Hulda ætla að vera þau fyrstu til þess að heimsækja mig hingað til San Francisco í byrjun mars og ég hlakka ekki lítið til að fá þau og sína þeim borgina sem ég fíla meira með hverjum deginum sem líður..
En já, það er rétt.. ég er fluttur inn í borgina! Ég ákvað að segja skilið við Pleasant Hill enda búin að kynna mér allt sem hægt er að kynna sér í þessum smábæ á þeim þremur mánuðum sem ég bjó þar.. það var alveg meira en nóg.. steindauður bær þar sem lítið sem ekkert var um að vera.. það var samt mjög gott að vera svona nálægt skólanum fyrst eftir að ég var að koma mér fyrir hérna úti en þar sem ég sé fram á að vera hérna í 2-3 ár þá þurfti ég að fara eitthvert þar sem það er meira líf í kringum mig og meira um að vera.. San Francisco hefur ekki gefið neitt eftir í því.. alltaf eitthvað nýtt á hverjum degi! Ég flutti sem sagt í lítið herbergi á einum besta stað í borginni.. ég bý í götu sem heitir Greenwich street og hún er á mörkum hverfa sem kallast Cow Hollow og Marina. Þetta þykja ein flottustu hverfin í borginni og er mikið af stórglæsilegum húsum hér.. þó mitt hús sé flott þá eru mörg mikið flottari.. hérna bý ég með tæplega sextugri konu sem upprunalega er frá Víetnam en hefur búið í San Francisco í yfir 20 ár.. hún er algjör snillingur, hún vinnur við að kaupa og selja veitingastaði, fylgist mikið með pólitík og því sem er að gerast í fréttum á milli þess sem hún eldar handa hundinum sínum Dino – sem er þriðji heimilismeðlimurinn.. eftir að ég kom hingað út er ég bara búinn að vera að koma mér fyrir, halda í við skólann sem byrjaði af krafti og reyna að vera eins duglegur og ég get við að kynna mér borgina..
ég er byrjaður að æfa fótbolta hérna út með liði sem ber viðeigandi nafn, FC Vikings, þar eru gaurar hvaðan af sem er úr heiminum.. fínt að geta sparkað smá bolta svona til að hrista af sér jólaspikið.. annars er ég líka búinn að finna mér ótrúlega góðan hring til að fara út að skokka.. það eru gjörsamlega allir hérna úti að skokka þannig að maður neyðist bara til að taka þátt.. hérna kom tvær myndir sem ég tók þegar ég rölti smá hluta af skokk hringnum mínum.. kem með fleiri seinna..

Ströndin við endann á Fisherman's Wharf

Alcatraz blasir við þegar ég hleyp niður hæðina
Það mun verða styttra þar til ég blogga næst og fleiri myndir!
What happens next on Greenwich street?!
Ohhh ég er ekki lengur viss um hvort ég vilji að þú sért að setja inn myndir. Ég fæ alveg svakalegan útlandafiðring við að sjá þetta!!!
En frábært að þú sért byrjaður aftur að blogga, bætir upp grámygluna sem er hér í Reykjavíkinni
Annars hlakka ég til að lesa um þig og nýja sambýlinginn…það hlýtur eitthvað að gerast þar því annars væri þetta ekki almennileg amerísk sápa ( kellan í One tree hill er sko með muuuun yngri manni
)
Tómas, æðisleg færsla! Þetta virðist ekki vera neitt sérstaklega leiðinleg staðsetning.. sjíses. Gangi þér vel í skólanum herra minn og njóttu borgarinnar þinnar. S kveður úr ritgerðargeggjun í Londres
Bara verið að ace-a skólann – ekki verra, til hamingju með það:)
En já, mig langar líka að koma, geturu lánað mér fyrir fargjaldinu sem svo bara afskrifast eða e-ð praktískt (í mína þágu, of körs). Annars lýtur þetta ekkert smá vel út hjá þér Tommi minn, heppinn þú!
P.s. held þú skuldir mér útskýringu, ehm já þú veist hvað ég meina mær!?
Hæjjjjj Tommi!
Maaan, ég datt óvart inná bloggið þitt í gegnum Sunnu, þú ert greinilega að rúlla þessu upp maður!!!
Gaman að lesa, ég á eftir að vera reglulegur gestur, þú ert allavega kominn í RSS-ið hjá mér.
High Five to San Fran,
Sóley
Noooh, til hamingju með flutninga. Lúkkar ekkert smá vel hjá þér.
Bið að heilsa Dino og Víetnamanum:)
Tommi, þú ert rekinn. Það er rosalega langt síðan 29. janúar var.
Hvernig væri að druslast til að blogga Tómas? Jú það væri fínt!
á hvaða mælikvarða verður styttra í næsta blogg?
þú ert væntanlega enn að taka myndir og hefur ekki tíma til að blogga…