Nú er komið nóg af kvörtunum… ég verð að skrifa eitthvað. Það er sem sagt bara búið að vera ótrúlega mikið að gera í skólanum hjá mér og það sem mig langar síst til að gera þegar ég var að koma úr tíma, er að fara í tíma, að byrja á nýju skilaverkefni eða nýbúinn að klára – það er að fara að blogga um skólann! Allur febrúar mánuður fór í að læra.. Mér tókst að fara einn dag til Berkeley (c.a. 30 min frá San Francisco) að hitta tvo félaga mína þar. Þeir eru í skóla í Santa Barbara (rétt hjá LA í suður Kaliforníu) og komu hingað norðar í fylkið eina helgina og við skelktum okkur einn golfhring, ég á strigaskóm og fékk svo lánaðar kylfur frá þeim… já, árangurinn var eftir því! Til þess að komast til Berkeley að hitta þá þurfti ég púsla hlutum ansi vel saman sem varð svo til að ég gleymdi myndavélinni..
Það er sem sagt hin ástæðan fyrir því að ég hef ekki þorað að blogga.. ég hef ekki tekið eina einustu mynd síðan síðast.. ég veit, frekar sorglegt.. ég hef bara ekki gefið mér tíma til þess, er annað hvort að læra eða það er rigning!! Í veðurparadísinni í Kaliforníu rignir víst líka.. og það ekki lítið! Eftir frábært veður frá september fram í janúar er nánast búið að rigna stanslaust.. hver “stormurinn” á fætur öðrum.. En ég á víst að geta huggað mig við það að í júní, júlí og ágúst rignir víst ekki neitt.. svo á að byrja að vor núna strax upp úr miðjum mars þannig að ég er bara farinn að hlakka til að fá smá sól og almennilegan hita.. ekki þetta 10-15 stiga rugl.. ég kom ekki alla leið til Kaliforníu fyrir þetta!
Á sunnudaginn fór ég í annað sinn á NBA leik í Oracle arena.. fór að sjá Golden State Warriors taka á móti Utah Jazz með einum félaga mínum hérna.. þessir leikir eru svo mikil snilld, ég væri svo til í að eignast ársmiða á heimaleiki Golden State en það kostar víst hálfa hendina og tvær tær… félagi minn hefur verið duglegur að finna og bjóða í miða á ebay og t.d. á þennan leik fengum við miða í 15. röð sem áttu að kosta 80 dollara á 28 dollara – frekar góður díll! Því miður töpuðu Golden State eins og svo oft áður en spennandi leikur alveg fram að leiks lokum engu að síður.. Við í bekknum vorum svo heppin að fá einn af þjálfurum Golden State til að koma í tíma til okkar og segja okkur aðeins frá sínum störfum.. hann fór einmitt í gegnum þetta sama nám og við á sínum tíma og vera því mjög fróðlegt að heyra hvernig hann hefur nýtt sér það.. síðan fengum við að spurja hann aðeins út í leikmennina og ég skaut því á hann hvernig stæði nú á því að liðið væri alltaf að tapa í síðasta leikfjórðungnum eftir að hafa leitt allan leikinn.. hann bað mig þá um að nefna einhvern sérstakan leik.. ég spurði hann þá út í Miami leikinn sem ég fór á sem þeir töpuðu í framleggingu.. kallinn var ekki lengi að svara því og skellti allri skuldinni á dómarana! flottur!
Það sem ég hlakka mest til núna er að fá Ásgeir og Huldu í heimsókn til mín en þau eru að koma núna á fimmtudagskvöldið.. ég er búinn að útbúa svakalega dagskrá með alveg fullt af hlutum sem mig hefur langað til að gera en beðið með þangað til einhver kæmi í heimsókn eins og að fara út í Alcatraz og í vínsmökkunarferð upp til Napa og Sonoma.. Þau ætla sem sagt að veita mér félagsskap hér í rétt tæpa viku og það verður svo gaman að sína þeim borgina sem ég fíla meira og meira með hverri vikunni sem líður.. ég er búinn að reyna að vera að vinna sem mest af verkefnum fram í tímann svo ég þurfi nú að gera sem minnst af skóladóti meðan þau eru hérna..
Annars eru bara þrjár vikur eftir af þessum skólafjórðungi sem þýðir að tveimur vikum eftir að Ásgeir og Hulda fara þá er ég kominn í vorfrí – spring break! Ég hef aðeins verið að skoða hvað hægt er að gera og ég er allaveganna kominn með far til LA með einni stelpu úr bekknum mínum ef ég vill fara þangað.. það kom upp hugmynd að skella sér til mexíkó eins og svo vinsælt er hjá háskólakrökkum að gera í spring break en lögreglan hefur varað nemum mjög gegn því þetta árið því ástandið er víst mjög eldfimt við landamærin núna.. löggan er í einhverjum slag við eiturlyfjainnflytjendur þarna norðast í mexíkó þannig að ég reikna með að fara bara eitthvað sunnar í Kaliforníu, komst kannski aðeins á ströndina, kannski eitthvað í golf (Ásgeir og Hulda ætla að vera svo elskuleg og dröslast með settið mitt hingað).. en þetta er allt enn óákveðið.. ætla allaveganna að reyna að gera eitthvað skemmtilegt.. ég verð í fríi í tvær vikur en svo byrjar ný 12 vikna skólatörn.. líf og fjör!
Í skólanum erum við meira og meira að fá að spreyta okkur í taka viðtöl og virkilega koma því í verk sem við erum að læra.. við höfum mikið verið í hlutverkaleikjum þar sem við skiptumst á að vera annars vegar ráðgjafin og hins vegar skjólstæðingurinn.. ég hef lært alveg rosalega mikið á því og sérstaklega þegar maður er með viðtal kannski fyrir framan allan bekkinn – þá er eins gott að maður sé með sitt á hreinu! En það er bara gaman.. við höfum svo aðeins fengið að prófa að vinna aðeins með skjólstæðinga sem við þekkjum ekki, íþróttamenn sem eru að æfa og keppa.. það hefur verið alveg ótrúlega skemmtilegt og þá sér maður virkilega hvar maður stendur í þessu og hvað maður getur enn bætt sig mikið.. Í þessari starfsþjálfun hef ég áttað mig meira og meira á því að þetta sé það sem mig langi til að gera og ég held að ég sé þar sem ég eigi að vera.. hvað sem framtíðin ber svo í skauti sér..
Engar myndir í þetta sinn en það verða pottþétt myndir næst frá heimsókn Ásgeirs og Huldu og öllu því sem við erum að fara að gera.. ég kem með góða ferðasögu af því næst.. Endilega farið að plana heimsókn til mín, svo gaman að fá gesti og ég sakna allra á klakanum ótrúlega mikið.. en ekki svo mikið að ég ætli að flytja heim strax =)
Stay tuned for next post from Greenwich street!
hey tommi eg er lika ad fara i svona role-play fyrir framan bekkinn, ertu med einhver god tips fyrir mig?
kvedjur ur solinni down under…
snilld.. mér finnst þetta ótrúlega skemmtilegt… eina ráðið sem ég hef er í rauninni að muna bara að hlusta á það sem skjólstæðingurinn er að segja þér.. ekki vera að reyna að hugsa um næstu spurningu til að spurja því þá geturu misst af svo miklu.. hlustaðu, endurtaktu í nokkrum orðum hvað skjólstæðingurinn var að segja og þá mun næsta spurning bara koma.. margir sem lenda í því að frjósa og fara úr hlutverki því þeir voru að leita að góðri spurningu til að spurja en fundu hana ekki.. og kennurunum hérna allaveganna líkar ekki vel við það er maður nær ekki að útiloka það sem er að gerast í kringum mann og halda sér í hlutverki..
þetta er allaveganna það sem hefur nýst mér vel.. gengi þér ótrúlega vel og vertu fyrst til að bjóða þig fram því maður lærir mest á því að fá að spreyta sig..
ertu ekki annars að fíla þetta snilldar nám þitt í tætlur?
TOMMI, farðu frekar í Sonoma. Það kostar ekki neitt, (stundum þarf maður þó að kaupa flösku, alls ekki alltaf þó). Mun færra fólk og miklu hlýlegra. Við fórum í 4-5 víngerðir og þær voru hver annarri sætari. Mæli eindregið með þessu. Skemmtilegra heldur en í bæði Chile og Argentínu, finnst mér allavega.
Ég var einmitt að heyra af e-m svakalegum leiðindum í TJ og öðrum borgum rétt við landamærin.. passaðu þig kallinn minn! Cabo er víst æði, en svolítið dýr.. hmm margt í boði.
Yndislegt að þú sért búinn að finna þinn ,,stað”/starfsvettvang! Gaman að lesa skrifin þín og þú ert nú búinn að gera heilmargt, læra fyrir allan peninginn. Fara á NBA leiki OG í hlutverkaleiki, fara til Berkley og skipuleggja dagskrá fyrir Á og H. Ekki slæmt.
Ástarkveðjur héðan,
Sunni
Tommi – elska þig í drasl.
Takk fyrir ofsalega innspýtandi komment.
Þakka fyrir að eiga að svona gott fólk eins og þig! Mörg hundruð kossar yfir til Fogcity.
Vonandi hefur þú það gott minn kæri, ég veit þú stendur þig eins og hetja í skólanum. Það þarf ekki að spyrja að því!
Ég væri vangó til í að kíkja í heimsókn næsta haust.. ertu til í það?
Ástarkv. Sunna – jákvæða.. jebb það er frost í helvíti